Smári og Hallbera, Hrísholt 3a 840 Laugarvatn

mánudagur, október 17, 2005

ath. til að skrifa í comment þarf að endurtaka stafarulluna sem stendur fyrir neðan (skýrir sig sjálft) þetta er gert til að sleppa við spam comment...

frábær klifurferð um helgina



Jæja, kominn tími til að karlpeningurinn á heimilinu skrifi nokkrar línur enda ár og dagar síðan síðast... Við skötuhjúin skelltum okkur sem sagt í þessa líka fínu klifurferð til Nissedal (1,5 tíma akstur frá okkur) um helgina. keyrðum af stað á laugardagsmorgun og klifum örlítið á æfingasvæði lokal klifurklúbbsins, eftir það tók við leit að passlega fínum stað til að tjalda fundum hann loksins eftir nokkurn rúnt, skelltum upp tjaldinu og hófumst handa við að steikja þessa líka dýrindis piparsteik sem rann ljúft niður í maga með gratíneruðum kartöflum og sveppasósu, allt eldað á prímus að sjálfsögðu. Á sunnudeginum tók svo við aðal klifrið, vorum búin að velja okkur leið úr leiðarvísi yfir svæðið. Leiðin sem við völdum heitir Via lara og er gráðuð 4+ á norskan kvarða en 5.6 á þann kvarða sem er notast við á Ísl. ef það segir ykkur eitthvað. Leiðin er 380 metra löng og mjög skemmtileg, frekar létt klifur en frábær upplifun að hanga í veggnum í 300 metra hæð og skoða sig um. Ég set með 2 myndir hérna en fyrir áhugasama þá eru fleiri á isalp.is fara þar í allar mínar síður neðst á síðunni og finna þar nafnið mitt. Annars er allt gott að frétta af okkur, ég rembist við að skrifa og Hallbera komin á fullt í nýju vinnunni.
Biðjum að heilsa

miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Hæ allir saman!!
Ég er bara heima núna og kemst ekki í skólann á morgun en veit að Smári fer svo ég ákvað bara að láta aðeins vita af okkur!!
Allt gott að frétta. Ég byrjaði á nýja leikskólanum í dag og það var alveg meirháttar!! Alveg topp leikskóli og topp fólk sem er að vinna þar... já eða það lítur allavega þannig út eftir fyrsta daginn. Sú sem ræður á minni deild er jafngömul mér og rosa fín. Það eru reyndar 24 krakkar á deildinni minni og bara 4 fullorðnir svo ég get alveg ímyndað mér að það verði smá líf í vetur þegar við erum farin að vera meira inni...
Veðrið er búið að vera geggjað hérna síðustu daga. Á sunnudaginn fórum við að baða okkur í á hérna rétt hjá og það var geggjað!! Spurning um að fara að gera það fljótlega aftur. Á mánudaginn vorum við bæði í frí en Smári var að fara að keppa um kvöldið. Ég fór bara í sólbað með prjónana og ipodinn og það var alveg toppurinn! Smári var bara í tölvunni allann daginn... það fílar hann alveg í tætlur!
Ég fór í berjamó í gær og tíndi fyrstu bláberin og þau voru bara svaka góð!! Ég lagði af stað inní skóg og reiknaði með að ganga svona í hálftíma eða eitthvað áður en ég byrjaði að tína en.... þegar ég var búin að ganga í 5 mín frá húsinu okkar þá sá ég svo mikið að ég þurfti bara að byrja að tína! Híhí... maður er svo bilaður... ég er nebblega þannig að ég leita af berjum allan tímann á meðan ég er í berjamó og ég er viss um að ég myndi ekki einu sinni taka eftir fólki ef það kæmi gangandi á móti mér!!
Helgin var róleg hjá okkur, Smári að vinna allan tímann og ég eitthvað að dúllast. Knut kom í heimsókn á laugardaginn.. já eða heimsókn.. hann var að keppa hérna og kom svo hingað til að slappa af áður en hann fór í partý og svo svaf hann hér. Voða gaman að sjá hann aftur.
Maggi frændi, bróðir hennar mömmu og Björg konan hans hringdu svo í okkur á lagardaginn og buðu okkur í lambakjöt. Þá voru þau á ferðalagi um Svíþjóð og Norge og eitthvað í Danmörk og voru bara hérna rétt hjá. Við þáðum með þökkum og vorum mætt í mat kl 22 um kvöldið Þau sögðu að það væri bara svona Sveinsstaða tími svo það var bara flott! Rosa gaman að hitta þau og alveg geggjaður matur!!
Ég er byrjuð að mála!! Ég hélt nú að ég myndi aldrei byrja á því en svo er víst!! Þetta er voða gaman en ég er nú samt ekkert flink... maður verður að prófa sig aðein áfram!! Mæli með þessu.... svona dót er svo ódýrt í Europris!
Ég var líka að gerast áskrifandi af föndurblaðinu hobbyideer og er þvílíkt spennt að fá fyrsta blaðið!! Ef einhver hefur áhuga þá er bara að kíkja inná pandurohobby.dk eða se eða no.
Ég er eiginlega á leiðinni út að hjóla... veit samt ekki hvort ég fer... búin að vera að hjóla á hverju kvöldi í klukkutíma og það er þvílíkt gaman. Ég fór bara í svo svakalega ferð í gær inní skóg og það er sko ekki létt að hjóla þar og núna er ég að drepast í leynistaðnum svo ég held kannski að ég fái mér frí í dag... fer bara í 2 tíma á morgun
Núna er farið að styttast all mikið í að Helga og Binni koma... ég er farin að hlakka mikið til! Veit ekki hvort ég ætla að fara til Osló og sækja þau en það kemur í ljós...
Jæja krakkar mínir... ég er svo spennt að fara að byrja á nýju listaverki.. er nebblega búin að ákveða hvernig það á að vera!!:)
Ég vona að allir hafi það gott og hugsi stundum til mín;);) Ég hugsa til ykkar,,, og enn meira ef þið skrifið í komment!!:)
Ég ætla að biðja Smára að setja inn myndir frá sumarfríinu svo endilega kíkið á það... ég vona bara að ég muni að biðja hann og að hann muni að setja þær inn!!
Spurning dagsins: Hvenær fórstu síðast í klippingu?? (Mig langar nebblega svo mikið!!)
XXX

laugardagur, maí 21, 2005

Ekki sátt við eurovision!!

dí... alltaf höldum við að við séum með besta lagið en ekkert gerist:( Við vorum ekki alveg sátt við hjónin.. við vorum svo viss um að við kæmumst áfram!! Við allavega getum verið sátt við Norge þar sem ég reikna með að noregur vinni þetta!!
Það var idol partý í gær og líf og fjör.. ég var að setja inn myndir ekki margar en þið getið samt alveg kíkt:)
Smári fór til Danmerkur í morgun klukkan 4:30 og var ekki alveg orðinn edrú... hann komst samt alla leið, fékk nebblega skilaboð í dag!:)
Rólegt hjá mér í dag... horfi líklega á eurovision með öðru auganu og prjóna á meðan..
hef ekki spurningu í dag.. er að flýta mér!!
XXX

þriðjudagur, maí 03, 2005

nýtt look

jæja gamla bloggid var eitthvad ad strida okkur tannig ad eg bjo bara til nyja sidu, nu ætti ad vera hægt ad skrifa i comment....