Hæ allir saman!!
Ég er bara heima núna og kemst ekki í skólann á morgun en veit að Smári fer svo ég ákvað bara að láta aðeins vita af okkur!!
Allt gott að frétta. Ég byrjaði á nýja leikskólanum í dag og það var alveg meirháttar!! Alveg topp leikskóli og topp fólk sem er að vinna þar... já eða það lítur allavega þannig út eftir fyrsta daginn. Sú sem ræður á minni deild er jafngömul mér og rosa fín. Það eru reyndar 24 krakkar á deildinni minni og bara 4 fullorðnir svo ég get alveg ímyndað mér að það verði smá líf í vetur þegar við erum farin að vera meira inni...
Veðrið er búið að vera geggjað hérna síðustu daga. Á sunnudaginn fórum við að baða okkur í á hérna rétt hjá og það var geggjað!! Spurning um að fara að gera það fljótlega aftur. Á mánudaginn vorum við bæði í frí en Smári var að fara að keppa um kvöldið. Ég fór bara í sólbað með prjónana og ipodinn og það var alveg toppurinn! Smári var bara í tölvunni allann daginn... það fílar hann alveg í tætlur!
Ég fór í berjamó í gær og tíndi fyrstu bláberin og þau voru bara svaka góð!! Ég lagði af stað inní skóg og reiknaði með að ganga svona í hálftíma eða eitthvað áður en ég byrjaði að tína en.... þegar ég var búin að ganga í 5 mín frá húsinu okkar þá sá ég svo mikið að ég þurfti bara að byrja að tína! Híhí... maður er svo bilaður... ég er nebblega þannig að ég leita af berjum allan tímann á meðan ég er í berjamó og ég er viss um að ég myndi ekki einu sinni taka eftir fólki ef það kæmi gangandi á móti mér!!
Helgin var róleg hjá okkur, Smári að vinna allan tímann og ég eitthvað að dúllast. Knut kom í heimsókn á laugardaginn.. já eða heimsókn.. hann var að keppa hérna og kom svo hingað til að slappa af áður en hann fór í partý og svo svaf hann hér. Voða gaman að sjá hann aftur.
Maggi frændi, bróðir hennar mömmu og Björg konan hans hringdu svo í okkur á lagardaginn og buðu okkur í lambakjöt. Þá voru þau á ferðalagi um Svíþjóð og Norge og eitthvað í Danmörk og voru bara hérna rétt hjá. Við þáðum með þökkum og vorum mætt í mat kl 22 um kvöldið Þau sögðu að það væri bara svona Sveinsstaða tími svo það var bara flott! Rosa gaman að hitta þau og alveg geggjaður matur!!
Ég er byrjuð að mála!! Ég hélt nú að ég myndi aldrei byrja á því en svo er víst!! Þetta er voða gaman en ég er nú samt ekkert flink... maður verður að prófa sig aðein áfram!! Mæli með þessu.... svona dót er svo ódýrt í Europris!
Ég var líka að gerast áskrifandi af föndurblaðinu hobbyideer og er þvílíkt spennt að fá fyrsta blaðið!! Ef einhver hefur áhuga þá er bara að kíkja inná pandurohobby.dk eða se eða no.
Ég er eiginlega á leiðinni út að hjóla... veit samt ekki hvort ég fer... búin að vera að hjóla á hverju kvöldi í klukkutíma og það er þvílíkt gaman. Ég fór bara í svo svakalega ferð í gær inní skóg og það er sko ekki létt að hjóla þar og núna er ég að drepast í leynistaðnum svo ég held kannski að ég fái mér frí í dag... fer bara í 2 tíma á morgun
Núna er farið að styttast all mikið í að Helga og Binni koma... ég er farin að hlakka mikið til! Veit ekki hvort ég ætla að fara til Osló og sækja þau en það kemur í ljós...
Jæja krakkar mínir... ég er svo spennt að fara að byrja á nýju listaverki.. er nebblega búin að ákveða hvernig það á að vera!!:)
Ég vona að allir hafi það gott og hugsi stundum til mín;);) Ég hugsa til ykkar,,, og enn meira ef þið skrifið í komment!!:)
Ég ætla að biðja Smára að setja inn myndir frá sumarfríinu svo endilega kíkið á það... ég vona bara að ég muni að biðja hann og að hann muni að setja þær inn!!
Spurning dagsins: Hvenær fórstu síðast í klippingu?? (Mig langar nebblega svo mikið!!)
XXX
3 Comments:
ég verð eiginlega að svara báðum sp núna....:) ég er að koma, skólin byrjar á meðan við verðum hjá ykkur þannig að það telst á næsta skóla ári.
er alveg að pæla í að panta mér klippingu þegar ég flyt aftur í borgina, langar svo í litun!!
Hlakka geggjað til að koma og það er minna en 2 vikur... pældu í því.
verð að fara að vinna..
Risa knús.. Helga
3:10 e.h.
fór í klippingu á föstudaginn fyrir tæpri viku... klippti samt ekki mikið aðallega að gera mann fínan því ég veit ekki hvenær ég fer næst í flugvél... allavega 7 eða 8 apríl :) dí er farin að hlakka svo mikið til!!! knús XXX
11:38 e.h.
halló ég fór í klippingu einhvern tíman í júní minnir mig, komin tími á að fara aftur. við hugsum alltaf til þín líka og ég er einmitt að baka spelt brauð núna, spurning um að smakka það. biðjum að heilsa, kiss og knús... elsa og mamma
1:03 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home