frábær klifurferð um helgina

Jæja, kominn tími til að karlpeningurinn á heimilinu skrifi nokkrar línur enda ár og dagar síðan síðast... Við skötuhjúin skelltum okkur sem sagt í þessa líka fínu klifurferð til Nissedal (1,5 tíma akstur frá okkur) um helgina. keyrðum af stað á laugardagsmorgun og klifum örlítið á æfingasvæði lokal klifurklúbbsins, eftir það tók við leit að passlega fínum stað til að tjalda fundum hann loksins eftir nokkurn rúnt, skelltum upp tjaldinu og hófumst handa við að steikja þessa líka dýrindis piparsteik sem rann ljúft niður í maga með gratíneruðum kartöflum og sveppasósu, allt eldað á prímus að sjálfsögðu. Á sunnudeginum tók svo við aðal klifrið, vorum búin að velja okkur leið úr leiðarvísi yfir svæðið. Leiðin sem við völdum heitir Via lara og er gráðuð 4+ á norskan kvarða en 5.6 á þann kvarða sem er notast við á Ísl. ef það segir ykkur eitthvað. Leiðin er 380 metra löng og mjög skemmtileg, frekar létt klifur en frábær upplifun að hanga í veggnum í 300 metra hæð og skoða sig um. Ég set með 2 myndir hérna en fyrir áhugasama þá eru fleiri á isalp.is fara þar í allar mínar síður neðst á síðunni og finna þar nafnið mitt. Annars er allt gott að frétta af okkur, ég rembist við að skrifa og Hallbera komin á fullt í nýju vinnunni.
Biðjum að heilsa
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home